Íslenski bærinn
Staðarhaldarar
Greinar og viðtöl
Tenglar


Upphafssíða
Senda póst
Fréttir - blogg

Íslenski bærinn

Íslenski torfbærinn endurspeglar sögu og lifnaðarhætti Íslendinga í aldanna rás. Torfbæir sem enn standa uppi eru meðal fárra mannvirkja í landinu sem telja má að séu verðmæti á heimsvísu.Um þessar mundir er verið að leggja grundvöll að menningarsetri í tengslum við torfbæinn að Austur-Meðalholtum í Flóa undir heitinu Íslenski bærinn. Starfssemin mun skiptast í þrjú samþætt svið:
I. Sýning á gamla bænum að Austur-Meðalholtum, sem hefur verið í endurbyggingu sl. 20 ár. Sex hús eru nú til staðar en þau munu verða átta sem mynda samstæða heild á bæjarhólnum.
II. Föst sýning með teikningum, ljósmyndum, líkönum og öðrum myndgervingum sem mun gefa heilsteypta mynd af þróun íslenska torfbæjarins frá upphafi fram á okkar tíma. Kjarni sýningarinnar verður í sérhönnuðu húsnæði,
Sýningarskálanum Gaulverjabæjarhreppi, sem nú er í byggingu.
III. Lögð verður rækt við sértæka verkmenningu og hugmyndafræði þessarar hefðar með námskeiða- og fyrirlestrahaldi undir merkjum
Hleðsluskólans.
Auk þessa verður starfssemin studd sérsýningum, atburðum og hátíðum sem spanna allt frá hefðbundnu handverki til samtímalistar. Á boðstólum verða sérhannaðir minjagripir, afurðir og veitingar. Áætlað er að Íslenski bærinn opni sumarið 2010.

 

. . .

 

Austur-Meðalholt in Flói parish is the site of a typical traditional farmhouse in the south Iceland style. Since few such farmhouses remain in Iceland and none in this district, a dedicated effort has been made to develop and conserve it. The farmhouse tradition embodies an important element of Icelandic history and the Icelandic way of life over the centuries. The few remaining traditional farmhouses rank with the handful of buildings in Iceland that can be deemed of global value. A cultural institution with an ambitious teaching and exhibition premises is presently in progress at Austur-Meðalholt under the name Íslenski bærinn. Its activities and purpose will be integrated in the following:
I. An exhibition of the old farmhouse at Austur-Meðalholt which has already undergone extensive development. Eight buildings form a homogeneous arrangement on the farm site.
II. A permanent exhibition featuring drawings, models and other visual materials that will produce a comprehensive picture of the evolution of this tradition of building over the centuries. The core of the exhibition will be in the specially designed Floi Exhibition Hall which currently is under construction.
III. Cultivation of practical skills which would be of use in the maintenance of turf buildings and related structures. Courses and lectures will be given by The Icelandic Turf Builders Guild. Additionally, there will be special exhibitions, events and festivals featuring traditional crafts as well as contemporary art. Specially designed souvenirs, local produce and refreshments will be offered. Activities at Íslenski bærinn/the Icelandic Farmhouse are aimed to enter full operation in summer 2010.

 

Hönnun: Vafurlogi ehf. 2005 - 2007 Webmaster