
Staðarhaldarar

Hannes Lárusson
hefur verið starfandi myndlistarmaður undanfarin 25 ár. Ferilskrá.
Hann hefur B.A. próf í heimspeki frá H.Í., meistarapróf
í myndlist fré Nova Scotia College of Art and Design í
Halifax, Kanada og gráðu í uppeldis- og kennslufræði
frá K.H.Í.
Hefur haldið fjölda einkasýningar, bæði hér
heima og erlendis, skrifað tugi greina og fyrirlestra um myndlist og
menningartengd efni.
Hann er alinn upp í torfbænum að Austur-Meðalholtum
til níu ára aldurs. Hann hafði frumkvæði að
og yfirumsjón með endurreisn bæjarins á árunum
1986-94 og vann að því verkefni m. a. með Jóhannesi
Arasyni hleðslumeistara og með ráðgjöf Harðar
Ágústssonar húsafræðings. Hannes hefur aflað
sér þekkingar á flestum verkþáttum sem
lúta að torfbænum, innanstokksmunum og lifnaðarháttum
sem þeim tengjast.
Vorið 2005 hélt hann 5 fyrirlestra um efni sem lýtur að
hinni íslensku torfbæjarhefð í boði Háskólans
í Victoria, Bresku Kólumbíu í Kanada og Green
Building Council of British Columbia við góðar undirtektir.
Kristín Magúsdóttir
hefur B.S. próf í efnafræði frá University
of Central Florida og meistaragráðu í lífefnafræði
frá University of California, Santa Cruz. Hún stundaði
framhaldsnám í lífefnafræði við háskólann
í Halifax, Kanada og nam einnig við Handíða- og myndlistaskóla
Íslands. Hún hefur lengst af unnið við rannsóknir
og kennslu við Háskóla Íslands og Tækniskóla
Íslands og var síðast dósent við Tækniháskóla
Íslands.
Hún hefur ávalt haft áhuga á vistvænnni
hugmyndafræði og hefur í mörg ár stundað
lífræna ræktun að Austur-Meðalholtum.
Hönnun: Vafurlogi ehf. 2005 - 2007 Webmaster